Veiga Dögg Magnúsdóttir • 23. nóvember 2026
Lionsklúbburinn færir Kerhólsskóla tvær hrærivélar að gjöf
Í síðustu viku afhenti Lionsklúbburinn Kerhólsskóla tvær hrærivélar að gjöf í nýuppgert kennslueldhús skólans. Við leituðum til klúbbsins eftir stuðningi við að útbúa eldhúsið okkar en betur og það var okkur mikið gleðiefni að fá svo góðar undirtektir.
Hrærivélarnar koma að góðum notum í heimilisfræðikennslu. Með tveimur vélum geta fleiri nemendur unnið að verkefnum í litlum hópum á sama tíma og fengið tækifæri til að spreyta sig í bakstri og matreiðslu.
Við í Kerhólsskóla þökkum Lionsfélögum kærlega fyrir höfðinglega gjöf og hlýhug í garð skólans. Gjöfin mun nýtast nemendum okkar um ókomin ár.
Fyrir hönd Kerhólsskóls
Veiga Dögg Magnúsdóttir

